26.03.1946
Efri deild: 92. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (545)
1. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :
Frv. þetta á að staðfesta brbl., sem áður eru útgefin. Það hefur oft orðið að samþ. lög um heimild fyrir ríkisstj. til að lengja frest varðandi tekju- og eignarskatt. Næstum árlega eru gefin út lög um þetta, enda er ríkisstj. heimilt samkv. IV. kafla l. frá 1935, um framtals- og kærufrest, að gefa út brbl. um þetta atriði. Það hefur alltaf þótt sjálfsagt að samþ. þau eftir á. Ég tel því rétt að samþ. þetta frv., svo að ekki þurfi að taka þetta upp aftur og aftur. Af þessum ástæðum leggur n. líka til, að frv. verði samþ. óbreytt.