01.03.1946
Neðri deild: 78. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (562)
158. mál, ríkisreikningurinn 1942
Jón Pálmason:
Ég skal lítið fara út í að ræða þær aths., sem fyrir liggja af hálfu okkar yfirskoðunarmanna um þennan reikning, því að þær skýra sig sjálfar, en reynslan er sú, að það er örðugt um aðgerðir til úrbóta varðandi slíkar aths., þegar svo langt er um liðið frá reikningsárinu sem á sér stað í þessu sambandi.
Það er þó ein af þeim aths., sem við höfum vísað til aðgerða Alþ., sem mér þykir ástæða til að vekja nokkra athygli á, og það eru hinar miklu fjárfúlgur, sem óinnheimtar eru af tekjum ríkissjóðs við hver árslok, og er ákaflega misjafnt hjá hinum einstöku gjaldheimtumönnum ríkisins. Sumir hafa hreint borð, en hjá öðrum munar þetta mjög miklu. Þetta er atriði, sem við núverandi yfirskoðunarmenn höfum fundið að ár eftir ár. Okkur hefur fundizt, að þegar fjárhagsástand er jafngott hjá almenningi og var árið 1942, þá hefði átt að vera auðvelt að fá þetta í betra horf.
Viðvíkjandi því, sem hv. fjhn. hefur hér minnt á varðandi það seinlæti, að reikningurinn er ekki fyrr tilbúinn en þetta, þá hefur hæstv. fjmrh. upplýst það, af hverju það stafar. En ég vil því til viðbótar segja það fyrir okkar hönd varðandi þennan reikning, að við skiluðum aths. við hann í marz í fyrra, og svör komu ekki til okkar fyrr en í okt. í haust, svo að það virtist náttúrlega vera óþarflega seint, en okkar vegna hefði þessi reikningur getað verið samþykktur talsvert miklu fyrr en raun er á.
Varðandi þann reikning, sem næstur er, fyrir árið 1943, þá er það að segja, að hann er tilbúinn og langt komið yfirskoðun á honum, hvort sem hann verður lagður fyrir þetta þing eða ekki.
Að öðru leyti skal ég ekki fara út í að ræða þær aths., sem fyrir liggja, úr því fjhn. kemur ekki með neinar sérstakar till. varðandi afgreiðslu þeirra.