06.12.1945
Efri deild: 46. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

4. mál, dýrtíðarvísitala

Forseti (StgrA) :

Ég vil taka það fram út af þeim ummælum, sem fram hafa komið um það, hvort till. á þskj. 167 væri á dagskrá eða ekki eða komin hér inn fyrir vangá, að hún er komin hér inn með eðlilegum hætti. Hún var á sínum tíma tekin aftur til 3. umr., og þegar dagskrá þessa fundar var ákveðin, hafði ekki komið fram nein till. í hennar stað eða tilkynning frá hv. n. um, að von væri á slíkri till. Till. á þskj. 305 var útbýtt hér í byrjun þessa fundar, en till. á þskj. 167 er hins vegar á dagskrá af eðlilegum ástæðum, eins og áður er um getið, og því til umr.