07.03.1946
Neðri deild: 82. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (780)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Eysteinn Jónsson:

Ég vildi bara koma því fram, að mér finnst hv. 2. landsk. vera særður yfir því, er ég sagði um daginn. Ég tek það fram, að þá þykir mér leiðinlegt, ef svo er. Ég mundi ekki í svipinn, hvar hv. þm. var í röðinni. Sízt af öllu er það ætlun mín að gera mönnum til óvirðingar að ósekju. Kemur aðeins fyrir, að ég man ekki, hvar þeir eru í röð.