11.03.1946
Neðri deild: 84. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (784)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Mig langar aðeins til þess að minnast á skriflega brtt. frá hv. þm. Borgf. Brtt. er við 3. gr. frv., og er þar ráð fyrir gert, að húsið sé rekið með aðstoð þeirra, sem leggja fram fé í það, og megi leigja það einstaklingum, en numin sé úr gildi heimild fyrir ríkisstj. til þess að reka það fyrir eigin reikning.
Ég tel rétt að hafa þessa heimild, ef slíkt millibilsástand kæmi, að ríkisstj. þyrfti að taka við rekstrinum. Ég legg því til, að þessi brtt. verði felld.
Ég vildi aðeins segja það í sambandi við brtt. hv. allshn. um að fella burt 5. gr. frv., að ég hef sjálfur gert grein fyrir andstöðu minni við brtt., en ég hef átt tal um hana við hv. 6. þm. Reykv., og sagði hann, að ég mætti hafa það eftir sér, að hann teldi það mikla skemmd á frv., ef þessi brtt. allshn. yrði samþ.