09.04.1946
Neðri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2153 í B-deild Alþingistíðinda. (80)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vildi mega beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvmrh., hvað hæft sé í sögusögnum. er gengið hafa, um drátt á afhendingu Svíþjóðarbátanna svokölluðu, er gert var ráð fyrir, að yrðu til fyrir þessa síldarvertíð.
Ég hef ástæðu til þess að ætla, að upplýsingar þær, sem ég hef fengið um þetta, hafi við rök að styðjast, svo að ég vildi leita til hæstv. atvmrh. um það, hvað hæft væri í þessu.
Það mundi baka síldarútveginum mikið tjón, ef skip þessi kæmu ekki fyrir vertíðina. Ef hæstv. atvmrh. gæti gefið einhverjar nánari upplýsingar um þetta, þá væru mér þær kærkomnar.