18.03.1946
Neðri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Eysteinn Jónsson:

Eins og ég sagði um daginn, hafði ég útbúið brtt. við frv. Ég hafði gert ráð fyrir, að fjhn. mundi skila áliti, og þar sem n. hefur ekki skilað neinum till., leyfi ég mér að leggja fram skrifl. brtt. Þessar till. eru miðaðar við, að fé verði heimilað til að greiða almennt fyrir gistihúsabyggingu.