15.04.1946
Efri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (872)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Gísli Jónsson:
Ég vildi bara benda hæstv. ráðh. á það, að þetta gildir um allt hlutaféð. Þeir eru með undanþágur. Ef bæjarstj. eða Eimskipafél. skyldu selja hlutabréf sín, þá munu einstaklingar koma með sínar kröfur. Sitja þá þeir kaupendur með rétt þessara aðila, og gæti svo farið, að einstaklingar réðu einir öllu í hlutafélaginu, en ríkissjóður engu.