17.04.1946
Neðri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (951)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Sveinbjörn Högnason:

Herra forseti. Brtt. mínar, sem ég flutti við 2. umr. þessa máls, fengu ekki náð, en ég ber fram brtt, við 3. umr. til þess að bæta úr, og vil ég ekki, að þetta mál verði afgr. svo fljótt, og ég óska þess, að afgreiðsla fari ekki fram með þessum hætti, því að það er erfitt að bera fram brtt., er 3. umr. málsins kemur strax á eftir 2. umr. Ég trúi því ekki, að það þurfi að hespa þetta mál af á einu kvöldi, þar sem mörg mál eru eftir á dagskránni.