15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

7. mál, skipakaup ríkisins

Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson) :

Ég saknaði þess í ræðu hæstv. atvmrh., að hann gaf engar upplýsingar um verðið á þessum skipum. En e. t. v. er hann ekki við því búinn nú og ekki fyrr en á næsta fundi.