15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (978)
7. mál, skipakaup ríkisins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð. Ég vildi vekja athygli bæði hæstv. forseta og hv. þdm. á meðferð þessa máls. Eins og hv. þm. V.-Húnv. gat um, þá er þessu máli vísað til fjhn. þessarar hv. d. í októbermánuði s. l., eitthvað um það bil 3 vikum fyrir veturnætur 1945. Það hefur legið í n. síðan og aldrei verið tekið þar fyrir — og er þetta þó stjfrv. — þangað til 9 nóttum fyrir sumar 1946, að mér skilst. Og þegar málið er svo tekið fyrir í n., þá er hafður á þessu slíkur skyndingur og flaustur, að það er ekki einu sinni tækifæri til þess fyrir minni hl, n., hv. þm. V.-Húnv., sem þó er kunnur að því að vera greiður í störfum, að gefa út nál. af sinni hendi, áður en málið er tekið fyrir til 2. umr., né heldur að koma á framfæri brtt., sem hann kynni að gera, sem mér er ekki kunnugt um, hverjar væru. En hann kann að hafa sérstöðu til málsins.
Út af þessu vil ég beina því til hæstv. forseta, að mér virðist þetta ekki sæmileg vinnubrögð. Mér sýnist því skynsamlegast að fresta þessari umr. þessa máls a. m. k. til morguns, þannig að mönnum gefist tóm til bæði að hlýða á þær upplýsingar, sem hæstv. atvmrh. þarf að búa sig undir að gefa, og eins til þess, að komið geti fram nál. af hendi hv. minni hl. n. og brtt., ef ástæða þætti til.
En viðvíkjandi efni málsins vildi ég gera fyrirspurn til hæstv. atvmrh. um eitt atriði, um það, hvað Landssmiðjunni ég man það ekki frá því í haust — var ætlað að smíða marga báta. (Atvmrh.: 12). Ég geri ráð fyrir, að ríkisstj. sé bundin við samninga, sem hún hefur gert við óviðkomandi aðila um að koma þessum bátum upp, þó að þeir verði dýrir, og að í því verði engu breytt. En mér sýnist það vera mjög til athugunar fyrir hæstv. ríkisstj. að láta ekki smíða a. m. k. alla þá báta, sem Landssmiðjunni hefur verið ætlað að gera, en leitast heldur við að fá ódýrari báta frá öðrum löndum í þeirra stað. Því að mér sýnist mikil ástæða til að óttast, að erfitt verði um sölu á þessum bátum fyrir kostnaðarverð, ef þær upplýsingar eru réttar, sem ýmsir hafa gefið um verðlag á bátum frá öðrum löndum, Það er náttúrlega ekki ástæða til að ætla, að menn kaupi miklu dýrari báta hér en hægt er að fá þá annars staðar. Út at þessu vil ég spyrja hæstv. atvmrh., hvort honum sé kunnugt um verðlag á bátum í Danmörku, og eins um hitt, hvort hægt muni verða á næstunni að fá þar smíðaða báta. Mér sýnist allt benda til þess, að rétt væri fyrir hæstv. ríkisstj. að draga úr þessum framkvæmdum, skipasmíðum Landssmiðjunnar, ef það væri auðið, frá því sem gert hefur verið ráð fyrir, að því leyti sem þær eru ekki komnar svo langt og samningar vegna þessara báta, að bindandi sé, en að hæstv. ríkisstj. ætti að snúa sér að því að fá ódýrari báta frá öðrum löndum og bjóða mönnum þá til kaups.