09.10.1946
Efri deild: 14. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Gísli Jónsson:

Með tilliti til þess, að lögþing Færeyja hefur lýst yfir sjálfstæði Færeyja, get ég ekki sagt já.

3. gr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 12 shlj. atkv.