30.09.1946
Efri deild: 8. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (222)
4. mál, rannsóknarstofnun í búfjármeinafræði
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Menntmn. ber fram brtt. á þskj. 32. Þessar brtt. eru ekki stórvægilegar efnislega, og skal ég játa, að flest ákvæðin í þeim hefðu getað verið í reglugerðinni, sem ráðgerð var samkvæmt brbl.
Í till. er lagt til að fjölga greinunum og setja inn nánari ákvæði, sem þó breyta ekki eða raska frumvarpinu eins og það lá fyrir. Að nefndin ber fram þessar brtt. er til samkomulags við hv. þm. N.-M., sem borið hefur fram víðtækari brtt., en mun fallast á brtt. nefndarinnar. Þó er það l. liður í þessum brtt., sem rétt var að taka upp í lögin og hefur mikla þýðingu. Það er ætlazt til, að það verði 4. gr. laganna og þar ákveðin laun starfsmanna á Keldum. Það virðist eðlilegt, að launin séu ákveðin með lögunum, en ekki með geðþótta ráðherra. Ég fyrir mitt leyti tel 6. lið óþarfan, en hann skaðar þó ekki, en samkv. honum falla úr gildi ákvæði laga nr. 64 frá 7. maí 1940. Skoðun mín er, að engin ákvæði téðra laga komi í bága við frumvarpið, en fjalli hins vegar um hliðstæð verkefni, en þetta getur ekki skaðað, að ef einhver ákvæði þessara laga komi í bága við frumvarpið, þá falli þau niður. Álítur n. því, að engu spilli, þótt þetta sé tekið upp í lögin.