19.09.1946
Sameinað þing: 6. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (30)

Setning þings af nýju

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. — Ég hef hér í höndum bréf forseta Íslands, sem ég nú skal lesa. Það hljóðar svo:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 19. september 1946, kl. 14.

Ritað í Reykjavík, 14. september 1946. Sveinn Björnsson.

(L.S.)

Ólafur Thors.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkvæmt þessu bréfi kemur Alþingi þá saman í dag til framhaldsfunda og tekur til starfa af nýju.