25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (313)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Hermann Jónasson:

Til þess að styðja hæstv. ríkisstj. í því að ná þeim samningum, sem hún telur sig ætla að ná, og ég efast ekki um að hún reyni að ná, og enn fremur með tilliti til þess, að mér er kunnugt um, að færi hefur verið gefið á því að bera þessa till. upp sérstaklega og án þess að hún væri í sambandi við þetta mál, þá segi ég já.