25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Björn Kristjánsson:

Herra forseti. — Ég tel, að með því að fella brtt. á þskj. 9, frá hv. 3. landsk., sé svo veiktur sá fyrirvari, sem felst í nál., að hann hefur kannske lítið eða ekkert gildi, og segi ég því nei við till.