25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Með skírskotun til afstöðu Sjálfstfl. til hins svokallaða herstöðvamáls og að ég ber ekki minnsta traust til hæstv. forsrh. og ríkisstj. að koma áleiðis þessari orðsendingu, sem ætlað er að fylgi tillögunni, þá segi ég nei.