25.07.1946
Sameinað þing: 5. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

9. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Forsrh. (Ólafur Thors):

Með því að ríkisstj. var búin að tala um, að þingi yrði frestað, þegar þessi till. væri afgr., og nú kemur einn af stjórnarliðum með brtt. við hana, verð ég að biðja um fundarhlé til að ræða það við ríkisstj.