24.09.1946
Neðri deild: 2. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

14. mál, barnaheimilið Sólheimar

Jörundur Brynjólfsson:

Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um þetta mál að þessu sinni. — Mér þykir vænt um, að hjá hæstv. ráðh. kom í ljós sá skilningur á því atriði, sem ég gerði að umtalsefni, sem ég bjóst víð, að ætti að leggja í það atriði. Mér hefði þótt heppilegra að orða það öðruvísi, en það er ekki stórvægilegt atriði.

Ég vil svo gera að till. minni, að málinu verði vísað til allshn., því að eftir eðli málsins á málið að koma fyrir þá nefnd.