23.05.1947
Efri deild: 143. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1043 í B-deild Alþingistíðinda. (1097)
250. mál, ríkisreikningurinn 1943
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Af því að við eigum því láni að fagna að hafa hér einn yfirskoðunarmann meðal okkar sem þm., langar mig til að vita, hvernig á því stendur, að fyrst á miðju ári 1947 er ríkisreikningurinn fyrir árið 1943 að koma fram. Þetta er svo mikill dráttur, að það verða að liggja rök fyrir því, að hann hefur ekki komið fyrr fram, og þau langar mig að vita, hver eru.