19.05.1947
Neðri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

255. mál, eignakönnun

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ég hefði farið óvarlega með sannleikann, og neitaði því, að hann hefði sótzt eftir störfum hjá Alþfl. En það er að fara óvarlega með sannleikann. Ég minnist þess og hef vitni að því, er þessi hv. þm. kom til mín upp á skrifstofuna í Austurstræti 1 með mann með sér til að sækja það fast að fá að verða forstöðumaður Tryggingastofnunar ríkisins, og ætlaði hann þá að útvega fylgdarmanni sínum stöðu þá, er hann skipaði þá sjálfur hjá Alþfl.