22.05.1947
Neðri deild: 137. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

255. mál, eignakönnun

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Ég hef lagt fram brtt. frá meiri hl. fjhn. Sú fyrsta er um það, að það þurfi ekki að leggja fram ríkisskuldabréf til sölu fyrr en 1. júlí í staðinn fyrir 15. júní, Á sama hátt, að þau skuli vera til sölu til 15. ágúst í stað 1. ágúst. Þessi till. er borin fram vegna þess, að talið er vafasamt, að hægt sé að hafa bréfin tilbúin fyrir 15. júní, og því síður, að hægt sé að koma þeim til útsölustaða. En brtt. við 17. gr. er aðeins til skýringar og er ekki efnisbreyt.