28.11.1946
Neðri deild: 26. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Fjhn. hefur tekið við þessu frv. frá fjmrh., en áskilur sér rétt til að hafa óbundnar hendur við afgreiðslu þess. Það hefur orðið ágreiningur um það í n., hvað lögin ættu að gilda lengi, og er sú deila ekki útkljáð enn þá. Nefndin óskar því, að málinu verði á þessu stigi vísað til 2. umr., en hún mun ræða málið áfram og skila þá áliti við 2. umr.