28.11.1946
Neðri deild: 28. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Ég legg fram fyrir hönd meiri hl. fjhn. þá till., sem ég lýsti við 2. umr., en till. er við 2. gr. og hljóðar svo: „2. mgr. laganna hljóði svo: Lög þessi falla úr gildi 1. febr. 1947,“ — Vil ég leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa skriflegu till.