17.12.1946
Efri deild: 35. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1341)
118. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur 1947
Sigurjón Á. Ólafsson:
Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni beina þeirri fyrirspurn til hæstv. fjmrh. út af ummælum hv. frsm. varðandi fjárgreiðslur vegna almannatrygginganna, sem að vísu, eins og hann sagði, ná ekki til fjárl. 1946, en eru á fjárl. 1947, hvort hæstv. ráðh. telur ekki nægilega sem heimild fyrir hann þá yfirlýsingu, sem kemur hér fram, og hvort hann mundi ekki vilja lýsa því yfir sem sinni skoðun, að yfirlýsing hv. frsm. sé fullnægjandi, þannig að heimilt sé að greiða fé vegna almannatrygginganna, sem gert er ráð fyrir að greiða.