21.12.1946
Neðri deild: 46. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Ég hafði að vísu látið orð falla um það, að ég mundi verða með þessari till., en eftir að komið hefur í ljós við atkvgr. um þær till., sem bornar hafa verið upp á undan, að meiri hl. þingsins virðist ekki leggja áherzlu á það, að stj. noti heimildir, sem hún hefur í l. til þess að halda vísitölunni niðri, sé ég mér ekki fært að greiða atkv. og sit því hjá.