22.12.1946
Neðri deild: 48. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

124. mál, bátaútvegurinn o. fl.

Skúli Guðmundsson: Herra forseti. Við 2. umr. þessa frv. hér í hv. d. flutti ég brtt. frá minni hl. fjhn. um að bæta í frv. nýrri gr. um ábyrgð á útflutningsverðmæti landbúnaðarafurða, sem greiða skyldi úr ríkissjóði. Þessi brtt. var samþ. hér við 2. umr. með 17:10 atkv., en efni hennar hefur verið fellt úr frv. í hv. Ed. Ég sé hins vegar enga ástæðu til þess fyrir þessa hv. d. að hverfa frá því að hafa þetta ákvæði í frv., þótt hv. Ed. hafi við fyrstu umferð málsins ekki viljað á það fallast. Ég vil því leyfa mér að flytja þessa brtt. hér óbreytta og leggja hana fram skriflega. Sé ég ekki ástæðu til að hafa um hana mörg orð, því að eins og ég áður gat um, er hún óbreytt frá því, sem áður var, og menn kannast því fullvel við efni hennar.