29.11.1946
Neðri deild: 29. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)

34. mál, sala verzlunarlóðarinnar á Sauðárkróki

Steingrímur Steinþórsson:

Ég leyfi mér að þakka fjhn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu þessa máls. Viðvíkjandi skilyrðum um lóðir og lendur vil ég fyrir mitt leyti segja, að ég er síður en svo á móti því, er fram kom í ræðu hv. 7. þm. Reykv. Þar þarf að setja einhver almenn skilyrði eða takmarkanir. En í sambandi við þetta vænti ég, að Sauðárkróki verði ekki sett nein sérstök skilyrði.