15.01.1947
Efri deild: 51. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

34. mál, sala verzlunarlóðarinnar á Sauðárkróki

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Út af aths., sem hv. 1. þm. N-M. gerði, þá hefur fjhn. tekið þetta fyrir, og breyt. á þskj. 284 er fólgin í því að tryggja, að ef ríkið þarf, þá er hreppnum skylt að láta þessa lóð af hendi við ríkið með kostnaðarverði.

N. varð sammála um að flytja þessa brtt., og vona ég, að hún verði samþ.