15.01.1947
Efri deild: 51. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

34. mál, sala verzlunarlóðarinnar á Sauðárkróki

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Ég ætla ekki að fara að deila um þetta. Það var líka rætt, en n. vildi ekki gera það að till. sinni, m. a. vegna þess möguleika, að hreppurinn okraði.

Það er ekki óeðlilegt, þegar ríkið selur, að tryggt sé, að kaupendurnir noti ekki eignina til að græða á. Hins vegar tel ég, að vart sé hægt að ætla, að þessi málsgr. gangi á nokkurn hátt á rétt hreppsins, eins og virtist koma fram hjá þm.

Annars munu atkv. skera úr um þetta.