13.12.1946
Neðri deild: 37. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

55. mál, aðflutningsgjöld o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Þegar þessi samningur við Bandaríki Ameríku, sem hér er til umr., var til meðferðar hér á hæstv. Alþ., greiddi ég atkv. gegn honum, vegna þess að ég taldi hann óheppilegan í ýmsum atriðum. En þar sem samningurinn var gerður með samþykki meiri hluta Alþ., þá tel ég, að það verði vitanlega að framkvæma hann. Og þar sem ég tel það viðunandi aðferð, sem gert er ráð fyrir í því frv., sem hér liggur fyrir, þá greiði ég atkv. gegn dagskrártill. og segi nei.