30.01.1947
Neðri deild: 62. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Eysteinn Jónsson:

Ég hefði vel getað fellt mig við þetta ákvæði. En þetta mál stendur mjög tæpt um afgreiðslu, hvað tíma snertir, og mér sýnist ekki ástæða til að hrekja það á milli deilda út af þessu. Ég segi því nei við þessu ákvæði, þó að ég hefði fylgt þessu, ef öðruvísi hefði staðið á.

2.–3. gr. samþ. með 22:1 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 22 shlj. atkv.