11.02.1947
Neðri deild: 71. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1640)

166. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1947

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann frestaði þessari umr. til morguns, svo að við fáum tækifæri til að taka þetta fyrir í þingflokki okkar og athuga það betur. Mundi það ekki verða til þess að tefja málið.