12.02.1947
Neðri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)
168. mál, bráðabirgðafjárgreiðslu 1947
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. er veikur og getur því ekki gert grein fyrir þessu máli. Eins og hv. dm. er kunnugt, er svo áliðið þessa mánaðar, að litlar eða engar líkur eru til þess, að hægt verði að afgreiða fjárl. fyrir lok mánaðarins. Er því nauðsynlegt, að í gildi séu l., er heimili ríkisstj. greiðslur, eftir því sem frv. þetta tilgreinir. Vildi ég mega vænta þess, að greitt verði fyrir þessu máli og að það næði fljótt fram að ganga hér í hv. d.