30.01.1947
Efri deild: 61. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)
66. mál, menntun kennara
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég tel ekki nema eðlilegt, að þm. langi til þess að vita, hversu mikið slík lagasetning sem þessi komi til með að kosta ríkið. Hv. form. menntmn. gat þess réttilega, að erfitt væri að gera áætlun um þetta á þessu stigi málsins, þar eð hvorki er vitað um nemendafjölda, kennarafjölda eða byggingarkostnaðinn við skólana. Þegar búið er að koma einhverju sniði á umrædda skóla, ætti að vera hægt að gera áætlanir, sem byggjandi væri á, um kostnað og annað. Þetta, sem frv. um getur, virðist smátt byrjað, svo að varla virðist hætta á, að of stórt verði byggt, því að reynslan sýnir, að oftast hefur verið byggt of smátt, þegar byggt hefur verið fyrir framtíðina, og orðið að stækka húsnæðið eftir á. Áætlun á þessu stigi málsins álít ég, að hefði ekki komið að miklu gagni, hvorki hv. þm. Barð. né neinum öðrum, því að hún hlyti að hafa orðið út í bláinn.
Um hinar einstöku gr. frv., sem hv. þm. Barð. gat um, ætla ég ekki að fjölyrða. Það er álit hans, að vinnutími kennara sé of stuttur, og við það er ekkert að athuga, þótt, hann hafi sína skoðun á því. Það getur verið álitamál, hvort íslenzka ríkið hafi eini á því að veita kennarastétt sinni árs frí með fullum launum tíunda hvert ár. Það er ekki rétt, að kennurum sé heitið ársfríi tíunda hvert ár, heldur er ætlazt til þess, að kennari fái eins árs frí, er hann hefur kennt í 10 ár, en ekki oftar en einu sinni. Getur kennaraævin hæglega orðið 40–50 ár, ef kennarinn byrjar 21 árs og kennir fram að 70 ára aldri.
Nm. fóru mjög vandlega gegnum þennan lagabálk og höfðu viðtal við fræðslumálastjóra og köstuðu engan veginn höndunum til þessa starfs. Ég get því ekki fallizt á það, sem hv. þm. Barð. sagði, að n. hafi athugað málið slælega. Ég held því fram, að n. hafi athugað þetta mál eins vandlega og hægt var, en það voru að vísu atriði, sem ekki var hægt að rannsaka að svo komnu, svo sem hvað þetta mundi kosta í framkvæmdinni.