17.03.1947
Efri deild: 95. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)
67. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :
Herra forseti. Síðan umr. um þetta mál var frestað, hefur efni þessa frv. verið tekið til nánari athugunar. Sú athugun hefur leitt til þess, að rétt hefur þótt, að það væri skýrt tekið fram í frv., að leyfi Sþ. þyrfti fyrir því, að hver fsp. yrði borin upp og rædd. Það hefur þótt rétt, að þetta væri skýrt tekið fram í gr. vegna ákvæða í stjskr. og til samræmis við þingsköp Alþ. Með hliðsjón af þessu hefur verið samin ný brtt. við frv., og liggur hún nú fyrir á þskj. 530. Um leið og ég f. h. n. leyfi mér að leggja til, að þessi brtt. verði samþ., lýsi ég því yfir, að fyrri brtt. n. á þskj. 478 er tekin aftur.