10.10.1946
Efri deild: 1. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Sætaskipun

Forseti (ÞÞ):

Deildin getur veitt afbrigði frá hvers konar þingskapaákvæðum sem er, eftir því sem þingsköp segja fyrir, og með afbrigðum hefur hún leyft, að fallið skyldi frá því að draga um sæti. Og þar sem engin andmæli gegn þessum afbrigðum komu fram þá þegar, þá verð ég að lýsa yfir því, að hv. þm. halda þeim sætum sínum, sem þeir höfðu á síðasta þingi.