28.10.1946
Efri deild: 5. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

24. mál, tekjuskattsviðauki 1947

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Það er allt hið sama að segja um þetta frv. og það, sem er næst á undan á dagskránni. Ríkissjóði mun ekki verða vanþörf á þessum tekjum, fremur en á undanförnu ári, og vænti ég því, að hv. þdm. fallist á að láta þetta ganga í gegn. Legg ég svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn. til athugunar.