11.04.1947
Efri deild: 113. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)
147. mál, vegalög
Björn Kristjánsson:
Herra forseti. Hv. frsm. samgmn. sagði tvisvar eða þrisvar, að brtt. á þskj. 567 væri sanngjörn, og ég held, að það sé rétt. Ef menn líta á kortið, þá sést, að vegurinn frá Fljótsdalshéraðsvegi að Mjóafirði hlýtur að komast í þjóðvegatölu, en lengd hans er 20–30 km, en af vangá var endi vegarins ákveðinn í Firði í Mjóafirði. Áður fyrr var verstöð í Mjóafirði og hvalveiðar voru stundaðar þaðan. Þessi staður er ekki innst í firðinum, heldur er það Brekka í Mjóafirði. Hún er aðalútgerðarstöð á þessum slóðum, og af vangá var það, að í Nd. var endi vegarins ákveðinn í Firði í stað Brekku. Þetta er sanngjörn breyting að lagfæra þetta, og samt lagði frsm. n. til, að þessi breyt. yrði felld, því ef hún yrði samþykkt, þá kæmi nýtt tillögumoð frá Nd. Ég get sagt það, að það kann að vera eitthvað til í þessu hjá hv. þm., en svona lítil breyt., sem er nánar sagt leiðrétting, mundi ekki valda misskilningi í Nd. Ég vil því leyfa mér að mælast til þess, að hv. þdm. sýni hér sanngirni og samþykki þessa brtt.