14.04.1947
Efri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)
137. mál, sala Stóruborgar í Grímsnesi
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. í þessu máli með fyrirvara. Ástæðurnar til þess eru tvær.
Fyrri ástæðan er sú, að ég tel nauðsynlegt að taka fram í sölubréfi, að kaupandanum, eða hér hreppnum, sé gert að skyldu að láta nauðsynlegar lóðir til handa kirkjunni af hendi endurgjaldslaust.
Hitt atriðið er, að þessi jörð liggur miðsveitis í hreppnum og er þarafleiðandi væntanlegur staður fyrir barnaskóla. Það eru til dæmi um það, að land undir skóla hefur verið selt dýru verði, upp í þriðjung kostnaðarverðs, sem hreppnum hefur borið að greiða. Þess vegna vil ég láta taka það fram í sölubréfinu, að jörðin sé seld með þeim skilyrðum, að hreppurinn láti land undir skóla endurgjaldslaust, þegar þar að kemur. Í því trausti, að þetta verði tekið til greina, mun ég samþykkja frv. óbreytt.