28.02.1947
Neðri deild: 83. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)

41. mál, skipulag og hýsing prestssetra

Frsm. (Páll Þorsteinsson) :

Herra forseti. Frv. þetta var fyrst flutt af hv. menntmn. d. og borið fram af kirkjumálastjórninni. Frv. hefur nú gengið í gegnum Ed. og hefur náð þar samþykki með nokkrum breyt. N. leggur þann skilning í 16. gr. frv., að afgjald prestssetra og prestsseturshúsa sé þar ákveðið sem húsaleiga og að skattlagning og mat fari eftir því.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta, en ég legg til, að frv. nái samþykki