07.03.1947
Efri deild: 87. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1549 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)
41. mál, skipulag og hýsing prestssetra
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég get fallizt á það, sem hv. utanrrh. sagði, að raunar skipti ekki svo miklu, hvað ofan á yrði í þessu efni. Þó er ég sannfærður um, að fyrir hv. þm. Barð. vakir að reyna að draga úr framlögum ríkisins með orðalagi sínu hér.
Viðvíkjandi brtt. hv. 2. þm. Árn. vil ég endurtaka það, að ef fella á efni hennar inn í frv., á það að koma inn í 1. gr., en ekki eins og af handahófi á eftir 5. gr. Þessi till. hans gengur út á að taka fram, að leita skuli umsagnar sóknarnefnda heima í prestaköllunum varðandi staðsetningu prestssetra í framtíðinni, en vitanlegt er, að þessi mál væru aldrei leidd til lykta án þess að leita álits málsmetandi manna heima í héraði. Má í því sambandi benda á ákvæði í 7. gr., um að viðkomandi presti skuli jafnan gefinn kostur á að gera aths. við uppdrátt húsameistara.
Hv. þm. Barð. taldi menntmn. mest hafa skjátlazt í því að spyrja ekki hæstv. fjmrh. að því, hvort hann teldi ekki of þungar byrðar lagðar á ríkið með þessu frv., og óskaði eiginlega eftir því, að forseti leitaði álits fjmrh. um þetta. Hæstv. ráðh. er hér nú ekki viðstaddur, en hins skal ég geta, að fyrrv. kirkjumrh. sagði í gær, að sér þætti mjög miður, ef dregið væri úr ákvæðinu um byggingu prestssetra á ári hverju frá því, sem n. leggur til. Kvaðst hann helzt óska eftir, að byggð yrðu fjögur hús árlega, og taldi á því fulla þörf.
Þá bar hv. þm. Barð. kvíðboga fyrir því, að frv. þessu væri stefnt í voða, ef því væri nú breytt frá því, sem hv. Nd. vill vera láta, og taldi hann, að um það mundi þá fara eins og sóknargjaldamálið. Ég get nú ekki skilið það, nema núv. ríkisstj. sé fylgislítil eða hún leggi ekki kapp á þetta mál. Ég geri þó ráð fyrir, að lið fyrrv. ríkisstj. standi að málinu. Það er því varla í hættu, og ég held, að þessi ótti megi því víkja frá hv. þm. Barð.