27.02.1947
Efri deild: 81. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (224)

24. mál, tekjuskattsviðauki 1947

Gísli Jónsson:

Þegar þessi l. voru sett, var beinlínis gert ráð fyrir því, að þau stæðu ekki nema eitt ár. Og með því að ég sé ekki, að þetta afli nægilegra tekna í ríkissjóðinn á þessu ári, heldur álít, að gera þurfi ýmsar aðrar ráðstafanir til þess, og ég tel, að það eigi að fara saman, segi ég nei.