18.03.1947
Neðri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1591 í B-deild Alþingistíðinda. (2364)

48. mál, innlend endurtrygging, stríðsslysatrygging skipshafna o. fl.

Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen) :

Herra forseti. Ég vildi, til leiðréttingar við brtt. hv. meiri hl. sjútvn. á þskj. 528, leggja fram skrifl. brtt. Það hafa orðið mistök, þannig að það stendur í brtt., að greinin orðist svo, en á að standa, til samræmis við það, sem að öðru leyti er í frv., að fyrri málsgr. 14, gr. orðist svo. Samkv. þessu vil ég bera fram skrifl. brtt., sem ég leyfi mér að afhenda hæstv. forseta.