29.04.1947
Neðri deild: 119. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)

198. mál, tunnusmíði

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Hv. þm. Siglf. beindi því til mín, að ég mundi ætla að láta prenta ræðu þá, er ég hélt hér, en hv. þm. ætti að stilla sig um að endurtaka ummæli þau, er hann hafði í frammi um Svíana, og spilla ekki þeim samningum, sem nú standa yfir milli íslenzku og sænsku samninganefndanna.