08.05.1947
Neðri deild: 124. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (2500)

204. mál, brúargerðir

Gísli Sveinsson:

Ég sé, að hv. frsm. n. er ekki hér staddur, og vil ég því lýsa því yfir, að það hefur þótt nægja að mæla með, að frv. næði fram að ganga í þessari d. eins og í Ed. Hins vegar er það enn þá svo, að ef til vill hafa einhverjir hugsa til að gera breyt. á þessu frv. Að öðru leyti er samkomulag um þessa löggjöf, eins og um vegal. á sínum tíma, í samvinnunefnd samgm., og er reynt að stilla svo til, að málið sæti ekki breyt. í síðari þd.

Nú er eftir ein umr. og gefst þá tækifæri til að flytja brtt., ef einhverjir óska.

Ég vil svo óska, að frv. verði vísað til 3. umr.