12.10.1946
Sameinað þing: 2. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Ég svara hv. 1. þm. Eyf. sem kirkjumrh., því að hann spurði mig sem slíkan. Það kom ekki til minna kasta að gera neinar ráðstafanir í slíku máli, sem fyrirspurn hv. 1. þm. Eyf. kemur við, og þess vegna hef ég ekki tekið þetta mál til athugunar. Hins vegar, ef hann hefði óskað að fá frá mér eða öðrum svör hér að lútandi, þá hefði hann væntanlega getað sýnt okkur þá kurteisi, liggur mér við að segja, að áður en þessi fyrirspurn kæmi hér fram, hefðum við átt kost á því að kynna okkur þessi efni og þar af leiðandi átt hægara með að svara. En eins og ég sagði áðan, hefur þetta mál ekki verið lagt fyrir mig, og þar af leiðandi hef ég ekki haft tækifæri til þess að kynna mér það og þá ekki heldur fær um að svara því að sinni.