13.12.1946
Sameinað þing: 18. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1980 í B-deild Alþingistíðinda. (2538)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Páll Zóphóníasson:

Ég vil leyfa mér að beina einni fyrirspurn til hæstv. samgmrh. Hann hefur hvað eftir annað tekið það fram í þessum umr., að Finnur Jónsson sé aðili í þessu máli. Mig langar því til að fá að vita, hvort hann á hér við persónuna, manninn Finn Jónsson eða dómsmrh. Finn Jónsson, því að þetta skiptir verulegu máli.