26.02.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1981 í B-deild Alþingistíðinda. (2542)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti. Jafnskjótt og ég sá þessar fréttir um þetta mál, sem hv. 2. þm. Reykv. talaði um hér, gerði ég ráðstafanir til þess að hafa samband við sendiherra Íslands í Washington til þess að fá hjá honum fregnir af því, hvað þarna væri um að vera, og átti ég samtal við hann nú alveg nýlega. Hann kannaðist við þetta mál og sagði, að þessi þingmaður hefði flutt till. um það, að bjóða Íslandi að gerast fylki í Bandaríkjunum, skilst mér, og enn fremur, að Bandaríkin skyldu kaupa Grænland og í þriðja lagi kaupa allar eyjar, sem væru í nánd við Bandaríkin. Og sendiherrann sagði, að hann, þingmaðurinn, hefði farið ákaflega vinsamlegum orðum um Íslendinga í þessu sambandi og talað um, hversu þýðingarmikið það væri, að þessar tvær miklu þjóðir gætu sameinazt. En að öðru leyti sagði sendiherrann, að þessi till. hefði alls ekki verið tekin alvarlega í þingi Bandaríkjanna og verið meðhöndluð þar af öllum sem hver önnur fjarstæða og að lítið hefði verið á hana þar í því ljósi af stjórnarvöldunum. Hitt bæri að líta á, að stjórnarvöldin þar gætu ekki hindrað, að slíkar till. kæmu fram. En okkur talaðist svo til, sendiherranum og mér, að sendiherrann skyldi fara beint til viðkomandi stjórnarvalda í Bandaríkjunum og láta það uppi af okkar hálfu hversu illa til fundið við teldum það, að Íslandi væri blandað inn í þeirra mál á þingi þeirra á þennan hátt, jafnvel þó að ljóst sé, að ríkisstj. þar hafi ekki vald til þess að stöðva það. Hitt, eins og hv. 2. þm. Reykv. sagði, er vitanlegt, að við lítum á þetta eins og hverja aðra fjarstæðu, og ég hef ekki á þessu stigi málsins séð ástæðu til að hafa í þessu frekari aðgerðir. Hins vegar lofaði sendiherrann að senda heim grg. um málið, þannig að skýrt lægi fyrir allt, sem gerzt hefur í málinu fram að þessu, og einnig, hvað í því kynni að gerast. Vænti ég, að menn telji þetta fullnægjandi grg., eftir því sem þetta mál hefur komið fram.