17.03.1947
Neðri deild: 97. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Jónsson:

Ég vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. fjmrh., hvernig ríkisstj. hugsar sér yfirfærslur margra þeirra útlendinga, sem hér eru í vinnu og hafa allt upp í 8000 kr. á mánuði, þar eð nú eru fyrirsjáanleg gjaldeyrisvandræði. Það er fullkomin ástæða til að athuga, hvernig firra megi landið þessari hættu. Ég óska því, að hæstv. fjmrh. skýri þetta mál við fyrsta tækifæri.